Forsíða
Tölvuskóli Íslands
Ferðamálaskóli Íslands
Stjórntækniskóli Íslands
Upplýsingar
Nemendur
Leiðsögunám

Leiðsögunám

 

Innan fárra ára er búist við að erlendir ferðamenn sem sækja Ísland heim verði allt að ein milljón. Jafnframt ferðast Íslendingar í síauknum mæli í skipulögðum ferðum um landið. Til að undirbúa leiðsögn bæði innlendra og erlendra ferðamanna þarf fólk með þekkingu á landi og þjóð. Ferðamálaskóli Íslands býður uppá fjölbreytt og skemmtilegt nám fyrir þá sem vilja kynnast Íslandi í máli og myndum. Í náminu skipa myndasýningar háan sess, þar sem helstu náttúruperlur landsins eru sýndar ásamt leiðarlýsingum um helstu ferðamannastaði landsins. Námið er hnitmiðað og áhugavert fyrir þá, sem kynnast vilja landinu okkar sem best. Námið er opið öllum þeim, sem áhuga hafa á að læra hverning standa skal að leiðsögn innlendra og erlendra ferðamanna um Ísland, og hvernig koma megi þeirri vitneskju sem best á framfæri.

Stuðst er við námsskrá menntamálaráðuneytisins um viðurkennt leiðsögunám. Helstu námsgreinar:
  • Helstu viðkomustaðir ferðamanna í máli og myndum
  • Saga landsins
  • Framsaga, raddbeiting, tjáning og framkoma
  • Ferðmálafræði
  • Handbókanotkun
  • Veðurfræði
  • Notkun internetsins við upplýsingaöflun
  • Skipulag og lagasetning í ferðaþjónustu
  • Þjóðhagsleg þýðing ferðaþjónustu
  • Fiskveiðar og vistkerfi sjávar
  • Íslenska efnhagskerfið
  • Skyndihjálp, skipulag á slysstað
  • Jarðfræði
  • Fuglar og flóra
  • Dýralíf og sjávarspendýr
  • Veiðiár og vötn
  • Bókmenntasaga
  • Listasaga
  • Menningartengd ferðaþjónusta
  • Mannleg samskipti, samskiptatækni
  • Afþreyingaferðir
  • Samstarf leiðsögumanns og bílstjóra
  • Ritgerðarverkefni og margt fleira

 

Meðal leiðbeinenda og fyrirlesara eru

  • Ástríður Guðmundsdóttir - Leiðsögumaður
  • Auður Sveinsdóttir - Landslagsarkitekt
  • Arthúr Björgvin Bollason - Njálusetrið, Hvolsvelli
  • Einar Sveinbjörnsson - Veðurfræðingur
  • Friðjón Sæmundsson - Skólastjóri Ferðamálaskólans
  • Hilmar Viktorsson - Leiðsögumaður
  • Höskuldur Frímannsson - Viðskiptafræðingur
  • Björgvin Herjólfsson - Landsbjörg
  • Jóhann Sigurjónsson - Hafrannsóknarstofnun
  • Þorleifur Jónsson - Hagfræðingur
  • Ágústa Kristófersdóttir - Listfræðingur
  • Jón Böðvarsson - Sagnfræðingur
  • Kristófer Már Kristinsson- Leiðsögumaður
  • Borgþór Kærnested – Leiðsögumaður
  • Martha Jensdóttir - Kennari
  • Stefán Helgi Valsson – Leiðsögumaður
  • Erlingur Sigurðsson – Tamningamaður
  • Páll Guðmundsson – Ferðafélag Íslands

 

Boðið er uppá dag og kvöldnám, farið er í ýmsar vettvangsferðir, auk þess sem lista og menningarhús eru heimsótt. Námið hefst í byrjun október og lýkur í apríl.

 

Tölvuskóli Íslands - Ferðamálaskóli Íslands - Stjórntækniskóli Íslands
Bíldshöfði 18 - 110 Reykjavík - Sími 5671466